2011 Framfaraþing 3. febrúar
25.01.2011
Framfaraþing verður haldið á Grand hóteli, fimmtudaginn 3. febrúar kl. 12:30-17:30.Framfaraþing verður haldið á Grand hóteli, fimmtudaginn 3. febrúar kl. 12:30-17:30. SKRÁ MIG HÉR. Þingstjóri verður Ragnar Þórir Guðgeirsson, framkvæmdastjóri Expectus.
Dagskráin hefst kl. 13:00 á því að Þórir Ólafsson formaður setur þingið og Ingjaldur Hannibalsson dósent við HÍ flytur fyrirlestur um samkeppnishæfni Íslands með tilliti til grunnstoða og ræðir um hlutverk og starfsskilyrði endurskoðenda. Síðan er kynning á vinnu dagsins, hringborðsumræður og úrvinnsla framfaraverkefna. Þinginu lýkur með kynningum á niðurstöðum hópa. Hér má sjá nánari dagskrá.
Þátttökugjald: kr. 15.000 fyrir félagsmenn FLE. Málþingið gefur 3 einingar í endurskoðun og 1 einingu í siðareglum- og faglegum gildum.