2011 Reikningsskiladagur 16. sept.
25.01.2011
Reikningsskiladagur verður haldinn 16. september á Grand Hóteli. Reikningsskiladagur verður haldinn 16. september á Grand Hóteli og hefst kl. 8:10 með skráningu. SKRÁ MIG HÉR. Ráðstefnustjóri verður Knútur Þórhallsson, endurskoðandi hjá Deloitte hf. Ráðstefnan er öllum opin og kostar kr. 20.000 fyrir félagsmenn og starfsmenn þeirra en kr. 27.000 fyrir aðra. Veittar eru 4 einingar í reikningsskilum.
Formaður FLE Þórir Ólafsson opnar ráðstefnuna kl. 8:25 og síðan mun Arna Guðrún Tryggvadóttir hjá PwC fjalla um tillögur FLE að úrbótum á ársreikningalögum. Hrafnhildur Mooney hjá FME ræðir um stjóprnarhætti og samstarf við endurskoðendur fjármálafyrirtækja og Stefán Sigurðsson fjallar um reikningsskil hjá CCP samstæðunni. Að loknu kaffihléi ætlar Sverrir Örn Þorvaldsson hjá Íslandsbanka að fjalla um áhættustýringu og upplýsingagjöf, Jón Arnar Baldurs segir frá Alþjóðareikningsskilaráðinu og ráðstefnunni lýkur með því að Jóhann Solomon segir frá nýjum og breyttum alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Hér má sjá nánari dagskrá.
Hér eru glærur Örnu Guðrúnar Tryggvadóttur hjá PwC um tillögur FLE að úrbótum á ársreikningalögum.
Hér koma glærur Stefáns Sigurðssonar um reikningsskil hjá CCP samstæðunni
Hér eru glærur frá Sverri Erni Þorvaldssyni hjá Íslandsbanka sem fjallaði um áhættustýringu og upplýsingagjöf
Hér eru glærur frá Hrafnhildi Mooney
Hér koma glærur Jóhanns Solomon
Hér eru svo glærur Jóna Arnar Baldurs