2012 Endurskoðunardagur 13. apríl
24.11.2011
Endurskoðunardagur FLE 2012 var haldinn með hefðbundnu sniði 13. apríl á Grand hóteli kl. 8:30-12:30.Endurskoðunardagurinn var haldinn 13. apríl á Grand hóteli Reykjavík frá kl. 8:30-12:30.
Dagskráin hófst á því að Ljósbrá Baldursdóttir var með erindi um matsliði í reikningsskilum ISA 540svo fjallaði Jens Röder framkvæmdastjóri NRF um EB tillögur varðandi stéttina og viðbrögð við þeim. Markús Eiríksson doktorsnemi í endurskoðun talaði um akademískar rannsóknir í endurskoðun. Þá fór Björg Sigurðardóttir yfir vinnu Siðanefndar á leiðbeinandi reglum fyrir útboðsaðila og fyrirhugaðar breytingar á siðareglum IFAC. Að lokum kynnti Jón Rafn Ragnarsson nýtt frumvarp til breytinga á lögum um endurskoðendur og Daníel Isebarn lögmaður fjallaði um aðgang að vinnupappírum endurskoðenda. Ráðstefnan var öllum opin og gaf 3 einingar í endurskoðun og 1 í siðareglum og faglegum gildum. Ráðstefnugjald var kr. 22.000 fyrir félagsmenn FLE, starfsfólk endurskoðunarfyrirtækja og félagsmenn FIE en kr. 30.000 fyrir aðra.
Hér má nálgst dagskrána í heild.
Hér eru glærur Ljósbrár
Jens Röder - glærur
Markús Eiríksson um akademískar rannsóknir
Björg Sigurðardóttir um útboðsmál og siðareglur
Jón Rafn um frumvarp um breytingar á lögum um endurskoðendur
Daníel Isebarn - aðgangur að vinnupappírum endurskoðenda
Hér er kynningin á OPUSallt hugbúnaðinum frá Advania