Af spjöldum FLE sögunnar 4

Af spjöldum FLE sögunnar            Af dýrtíð Á félagsfundi 24. maí 1940:...var rætt um hækkun á endurskoðunarlaunum vegna síhækkandi dýrtíðar. Samþykkt var að fara fram á að fastir viðskiptavinir félagsmanna hækki endurskoðunarlaun fyrir þetta ár um 20%. Mæti þessi tillaga mótstöðu hjá einhverjum viðskiptavini er félagsmaður sjálfráður um það hvernig samningar takast við þennan viðskiptavin". Þá var á aðalfundi 3. desember 1943: "Lögð fram tillaga um að árgjaldið væri hækkað úr kr. 40 í kr. 100 og var sú tillaga samþykkt." Hækkunin er 250% sem er kannski vísbending um dýrtíðina á þessum árum. (Úr afmælisriti FLE 1995)