Álitsnefnd

Álitsnefnd Félags löggiltra endurskoðenda er, samkvæmt samþykktum félagsins, ætlað það hlutverk að láta uppi, fyrir félagsins hönd, rökstutt álit um hvers konar fyrirspurnir er varða starfssvið löggilÁlitsnefnd Félags löggiltra endurskoðenda er, samkvæmt samþykktum félagsins, ætlað það hlutverk að láta uppi, fyrir félagsins hönd, rökstutt álit um hvers konar fyrirspurnir er varða starfssvið löggiltra endurskoðenda. Jafnframt ber nefndinni að fella úrskurði í þeim málum sem til hennar er vísað samkvæmt reglum um samskipti félaga í Félagi löggiltra endurskoðenda. Nefndin leitar eftir greinargerðum fagnefnda félagsins um einstök mál eftir því sem við á. Flest þeirra mála sem beint er til nefndarinnar varða setningu laga og reglna um efni er varða starfssvið löggiltra endurskoðenda. Álitsnefnd berast margar beiðnir um álit og mest er álagið við fjárlagagerð og þinglok.  Það eru alls konar mál sem berast bæði frumvörp og þingsályktanir. Um 80% mála hljóta ekki umsögn en FLE svarar öllum beiðnum. Aðallega er um þrenns konar svör að ræða: 1) FLE gerir ekki athugasemdir 2) FLE tekur ekki afstöðu 3) GFLE gerir athugasemdir. Í Álitsnefnd FLE, starfsárið 2011-2012 sitja:  Sigurður Páll Hauksson, formaður J. Sturla Jónsson, varaformaður Þórir Ólafsson  Margret G. Flóvenz Eymundur Einarsson Anna Kristín Traustadóttir