AUGLÝSING um nýtt fasteignamat. Mat pr. 31.12. 2008.

PDF skjal Nýtt fasteignamat sem birt var í dag inniber m.a. eftirfarandi: Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða á höfuðborgarsvæðinu , Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum, Akranesi, Akureyri, Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Egilsstöðum, Fellabæ og Hveragerði verður óbreytt. Matsverð fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða á Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Ísafirði lækkar um 5%.. Matsverð sumarhúsa og sumarhúsalóða lækkar um 10%. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í Garði, Stykkishólmi, Bolungarvík, Hólmavík, Siglufirði, Dalvíkurbyggð, á Búðum í Fáskrúðsfirði, á Stöðvarfirði, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum og Hvolsvelli og ennfremur í þéttbýli í Snæfellsbæ, Eyjafjarðarsveit og Mýrdalshreppi hækkar um 10%. Annars staðar hækkar m atsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða, svo og matsverð bújarða ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum og matsverð hlunninda  um 5%.