361- Frumvarp til laga um bókhald
17.12.2008
Frumvarp til laga um breyting á lögum um bókhald, nr. 145/1994, með síðari breytingum er hér með.
Frumvarp (PDF)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í framhaldi af nýjum lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur.
Samkvæmt þeim lögum geta ekki aðrir en þeir sem fá löggildingu ráðherra endurskoðað reikningsskil og áritað.
Er þetta frumvarp einnig tengt breytingum í frumvarpi til breytinga á lögum um ársreikninga . Er þar fjallað um hlutverk endurskoðenda og skoðunarmanna.
Í því frumvarpi sem hér er með er lagt til að heimild félaga til að hafa texta bókhaldsbóka og ársreikninga á dönsku eða ensku í stað íslensku nái einnig til annarra félaga en þeirra sem hafa heimild til að hafa reikningsskilin í erlendum gjaldmiðli.
Einnig eru ákvæði varðandi geymslu bókhaldsgagna erlendis í allt að sex mánuði.
Miðað er við að ákvæðin öðlist gildi 1. janúar 2009. Ef er annað reikningsár en almanaksárið þó ekki fyrr en við upphaf fyrsta reikningsárs sem hefst eftir 1. janúar 2009.