Áhrif tæknibreytinga á endurskoðun

Evrópusamband endurskoðenda (Accountancy Europe) hefur tekið saman mjög áhugaverða umfjöllun um áhrif tæknibreytinga og tilkomu gervigreindar á störf endurskoðenda á síðustu misserum og árum sem og líklega framtíðarþróun. Þarna er að finna örstutt en um leið fróðleg myndbönd þar sem hinir ýmsu sérfræðingar fara yfir þessi mál. Það er óhætt að fullyrða að það séu spennandi tímar fram undan og margt sem kemur til með að breytast í störfum endurskoðenda á næstu árum ef þessar spár rætast.