Atburðir eftir lok reikningsskiladags
22.09.2003
Hugsanlegar endurskoðunaraðgerðir:
Fyrirspurnir til stjórnenda varðandi atburði eftir lok reikningsskiladags sem gætu haft áhrif á reikningsskilin.
Bera saman upplýsingar frá stjórnendum og okkar eigin þekkingu á starfsemi fyrirtækisins og viðskiptaumhverfinu.
Skoða fundargerðir stjórnar og aðrar fundargerðir eftir því sem viðeigandi er.
Skoða nýjasta milliuppgjör ef til er eða aðrar stjórnendaupplýsingar s.s. skýrslur úr bókhaldi. Skoða greiðslu-og rekstraráætlanir.
Afla upplýsinga varðandi yfirvofandi málsókn eða aðrar kröfur.
Geta verið ýmis atriði sem við rekumst á í endurskoðunarvinnunni sem getur verið ástæða til að taka tillit til.