B 266 REGLUGERÐ um breytingu á reglugerðum greiðslu vaxtabóta. Eignarhald á tveimur íbúðum.

pdf smella hér Meðfylgjandi reglugerð sem birt var í dag og dagsett er 26.02.sl með gildistöku nú þegar,  varðar  breytingu á reglugerð nr. 990/2001, um greiðslu vaxtabóta, með síðari breytingum. Hún fjallar um  útvíkkun á vaxtabótarétti í þeim tilfellum að  maður eigi fleiri en eina íbúð. Getur nú  réttur til vaxtabóta haldist vegna tímabundins eignarhalds á tveimur íbúðum ef sala íbúðar reynist ómöguleg vegna óvenjulegra aðstæðna á fasteignamarkaði. Réttur til vaxtabóta af þessum sökum helst allt að þremur árum. Við þessar aðstæður er útleiga íbúðarhúsnæðis heimil án þess að réttur til vaxtabóta skerðist.