Cayman-eyjar. Upplýsingaskipta- og aðrir samningar. (Frétt frá fjármálaráðuneytinu).

Pdf - smellið hér Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 2. apríl 2009 Upplýsingaskiptasamningur við Cayman-eyjar 2.4.2009 Í gær var undirritaður í Stokkhólmi samningur milli Íslands og Cayman- eyja um upplýsingaskipti á sviði skattamála. Á sama tíma undirrituðu hin Norðurlöndin samhljóða samning við Cayman-eyjar. Af hálfu Íslands undirritaði Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra samninginn en fyrir hönd Cayman-eyja Alden McLaughlin, ráðherra alþjóðlegra fjármálaviðskipta. Jafnframt hefur verið unnið að gerð þriggja samninga er varða skattlagningu tekna á afmörkuðum sviðum, þ.e. samningur um að komast hjá tvöfaldri skattlagningu á tekjur einstaklinga, samningur um skattlagningu tekna af rekstri skipa og flugvéla og samningur um aðferðir við ákvörðun hagnaðar tengdra fyrirtækja. Þessir þrír samningar verða undirritaðir í París í sumar. Stefnt er að fullgildingu allra samninganna á þessu ári og munu þeir koma til framkvæmda um næstu áramót.